Ian Nepomniachtchi (2766) gerði stutt jafntefli við Ding Liren (2806) í áttundu umferð áskorendamótsins í skák sem fram fór í Madrid í gær. Á sama tíma tapaði helsti andstæðingur hans Fabiano Caruana (2783) fyrir landa sínum Hikaru Nakamura (2760) í magnaðri sex klukkustunda baráttuskák.
Richard Rapport (2764) vann sannfærandi sigur á Jan-Krzysztof Duda (2750).
Eftir gærdaginn hafa Rapport og þá sérstaklega Nakamura hafa nú möguleika á að blanda sér í toppbáráttuna. Miðað við fyrri ummæli Magnúsar Carlsen er ekki útilokað að tveir efstu menn mótsins tefli næsta heimsmeistaraeinvígi.

Áttunda umferð fer fram í dag. Nepo teflir við Ding Liren (2806) og Caruana við landa sinn Hikaru Nakamura (2760). .
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (heimasíða) – hefjast kl. 13
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Auglýsing -















