Að loknum öðrum keppnisdegi á Kvibergspelen í Gautaborg er Vignir Vatnar Stefánsson efstur íslensku keppendanna. Hann er í 4. sæti mótsins fyrir lokadaginn með 5 vinninga af 6 mögulegum. Næstir úr hópi Íslendinganna eru Birkir Ísak Jóhannsson með 4,5 vinning og svo Oliver Aron Jóhannesson, Stephan Briem, Dagur Andri Friðgeirsson, Hörður Aron Hauksson og Arnar Milutin Heiðarsson allir með 4 vinninga.

Í flokki u1600 stiga, Lilla Kvibergspelen eru efstir Íslendinganna þau Arnar Logi Kjartansson, Emil Kári Jónsson, Emilía Embla B. Berglindardóttir og Nikola Klimaszewska öll með 3 vinninga.

Íslensku keppendurnir hafa teflt margar áhugaverðar skákir á mótinu og látið stigahærri – og reyndari – andstæðinga svitna. Í 6. umferð leit út fyrir að norski stórmeistarinn Simen Agdestein myndi setja hina grænklæddu meðlimi Skákdeildar Breiðabliks varanlega á svarta listann sinn en hann var koltapað tafl gegn Stephan Briem. Simen hafði tapað gegn Birki Ísaki í 3. umferð mótsins en var heldur heppnari gegn Stephan, slapp með skrekkinn og vann á endanum.

Hinir ungu keppendur Skákdeilda Breiðabliks og Fjölnis hafa staðið sig með prýði gegn eldri, reyndari og stigahærri andstæðingum og ekki bara safnað reynslu heldur einnig náð sér í hrúgu af skákstigum.





Nánar má kynna sér einstök úrslit og árangur íslensku keppendanna á úrslitasíðu mótsins. Bein útsending frá 7. umferð hefst kl. 7:00 að íslenskum tíma á sunnudagsmorgni. Lokaumferðin hefst kl. 12:00.

















