Í gær lauk seinni keppninni á LiChess um sæti á Heimsmeistaramótinu í Fischer-slembiskák. Úsbekinn Nodirbek Abdusattorov vann Anish Giri í úrslitum og tryggði sér þar með sjöunda lausa sætið.
Congratulations to GM Nodirbek Abdusattorov, who will be going to Reykjavik! 🎉
Forcing GM Anish Giri into another must-win position in blitz tiebreaks, Abdusattorov kept up pressure, fought hard – and despite spectacular play from Giri, secured victory of the game and match! pic.twitter.com/ckZsdANckZ
— Lichess.org (@lichess) October 1, 2022
Abdusattorov leiddi ólympíuliði Úsbeka sig sigur á Ólympíuskákmótinu í Chennai. Hann er auk þess núverandi heimsmeistari í atskák. Hann er til alls líklegur á mótinu.
Þar með er ljóst hverjir ssjö af átta keppeendum mótsins verða. Ekki liggur fyrir hvern Arkady Dvorkovich, forseti FIDE, velur sem áttunda keppenda mótsins.
- Wesley So – heimsmeistari í Fischer-slembiskák
- Magnús Carlsen – heimsmeistari í skák
- Hjörvar Steinn Grétarsson – val skipuleggjenda
- Vladimir Fedoseev – undankeppni á Chess.com
- Matthias Bluebaum – undankeppni á Chess.com
- Hikaru Nakamura – undankeppni á LiChess
- Nodirbek Abdusattorov- undankeppni á LiChess
- Val forseta FIDE
Sem fyrr auglýsa mótshaldarar eftir sjálfboðaliðum.















