Að loknum öðrum keppnisdegi á Kvibergspelen í Gautaborg er Vignir Vatnar Stefánsson efstur íslensku keppendanna. Hann er í 4. sæti mótsins fyrir lokadaginn með 5 vinninga af 6 mögulegum. Næstir úr hópi Íslendinganna eru Birkir Ísak Jóhannsson með 4,5 vinning og svo Oliver Aron Jóhannesson, Stephan Briem, Dagur Andri Friðgeirsson, Hörður Aron Hauksson og Arnar Milutin Heiðarsson allir með 4 vinninga.

Liss, Hrund, Emil Kári, Helgi, Oliver Aron, Tinna Kristín, Hörður Aron og Dagur Andri frá Skákdeild Fjölnis

Í flokki u1600 stiga, Lilla Kvibergspelen eru efstir Íslendinganna þau Arnar Logi Kjartansson, Emil Kári Jónsson, Emilía Embla B. Berglindardóttir og Nikola Klimaszewska öll með 3 vinninga.

Fulltrúar Kópavogs í Gautaborg

Íslensku keppendurnir hafa teflt margar áhugaverðar skákir á mótinu og látið stigahærri – og reyndari – andstæðinga svitna. Í 6. umferð leit út fyrir að norski stórmeistarinn Simen Agdestein myndi setja hina grænklæddu meðlimi Skákdeildar Breiðabliks varanlega á  svarta listann sinn en hann var koltapað tafl gegn Stephan Briem. Simen hafði tapað gegn Birki Ísaki í 3. umferð mótsins en var heldur heppnari gegn Stephan, slapp með skrekkinn og vann á endanum.

Brosmildar Fjölnisstelpur sem koma allar úr Rimaskóla og tefla í Lilla Kvibergspelen

Hinir ungu keppendur Skákdeilda Breiðabliks og Fjölnis hafa staðið sig með prýði gegn eldri, reyndari og stigahærri andstæðingum og ekki bara safnað reynslu heldur einnig náð sér í hrúgu af skákstigum.

Sigurður Páll einbeittur
Andreas Lundström rétti brosandi fram höndina þegar hann gafst upp gegn Emilíu Emblu úr Skákdeild Fjölnis
Oliver Kovacik kom alla leið frá Slóvakíu til þess að hitta félaga sína úr Skákdeild Breiðabliks
Fjölnisstelpur á hverju borði – næst er Elma Karen, þá Tara Líf og svo Fanney Bára
Engilbert Viðar undirbjó heimabrugg gegn Adam Morell (1481) og vann frábæra skák

Nánar má kynna sér einstök úrslit og árangur íslensku keppendanna á úrslitasíðu mótsins. Bein útsending frá 7. umferð hefst kl. 7:00 að íslenskum tíma á sunnudagsmorgni. Lokaumferðin hefst kl. 12:00.

Úrslitasíða mótsins

Beinar útsendingar

- Auglýsing -