Íslenska sveitin steinlá fyrir Englandi, 0-4, í áttundu umferð EM öldungasveita. Í níundu og síðustu umferð, sem fram fór í gær gerði sveitin svo 2-2 jafntefli gegn Írlandi.

Íslenska sveitin endaði með 9 stig af 18 mögulögum og í 20. sæti. Jón Kristinsson stóð sig afar vel og hlaut 6½ af 8 mögulegum. Hann hlaut silfurverðlaun fyrir næstbestan árangur varamanana. Björgvin Víglundsson stóð sig vel á fyrsta borði en hann fékk 4 vinninga af 7 mögulegum.

- Auglýsing -