Allshetjargoðinn, Hermann, hvetur sína menn áfram.

Hið árlega Atskákmót Goðans 2022 fer fram í Framsýnarsalnum á Húsavík laugardaginn 12. nóvember og hefst mótið kl 10:30. Tefldar verða 7 umferðir og verður umhugsunartíminn 15 mín með 5 sek viðbótartími á hvern leik. Áætluð mótslok eru um kl 16:00.

Mótið er öllum opið en aðeins félagsmenn Goðans geta unnið til verðlauna.
Þátttökugjald er krónur 1000.
Mótið verður reiknað til Fide atskákstiga. Áhugasamir geta skráð sig til leiks í síma 8213187 (Hermann) Tekið er við skráningum í mótið til klukkan 10:25 á mótsdegi. 
Smári Sigurðsson er Atskákmeistari Goðans 2021
- Auglýsing -