Skák.is óskar skák- og skákáhugamönnum nær og fjær gleðilegra jóla. Minnt er á jóladagskrá félaganna sem er sem hér segir.
- 27. desember – Þriðjudagsmót TR
- 28. desember – Íslandsmót kvenna í hraðskák
- 28. desember – Jólahraðskákmót Goðans
- 29. desember – Jólahraðskákmót SA í Lyst
- 29. desember – Korpúlfar (öldungarmót)
- 29. desember – Jólahraðskákmót TR
- 30. desember – Hverfakeppni SA
HM í at- og hraðskákmót fer fram um 26.-30. desember í Kasakstan. Taflmennskan hefst kl. 9 á morgnanna! Við bendum hér á heimasíðu mótsins en hægt verður að fylgjast með því á ýmsum stöðum.
Meðal keppenda verða Magnús Carlsen, Hikaru Nakamura og Hans Niemann!
- Auglýsing -


















