Dagur 3 á HM í atskák hófst kl. 9. Tefldar eru umferðir 10-13 af 13 í opnum flokki og umferðir 9-11 af 11 í kvennaflokki.
Bein lýsing
Magnús Carlsen (2834) er efstur í opnum flokki með 7½ vinning að loknum 9 umferðum. Í 2.-4. sæti eru Rússinn Vladimir Fedoseev (2741), Úsbekinn Nobirbek Abdusattorov (2676) og Þjóðverjinn Vincent Keymer (2590) með 7 vinninga. Allt skákmenn hafa teflt á Íslandi síðustu misseri.
Í kvennaflokki er lokið átta umferðum af ellefu. Efstar eru Tan Zhongyi (2502), Kína, Aleksandra Goryachkina (2484), Rússlandi, og Shri Savitha (2311) með 6½ vinning.
Meðal keppenda eru flestir sterkustu skákmenn heim. Þar á meðal Magnús Carlsen, Hikaru Nakamura, Fabiano Caruana, Ian Nepomniachiatchi og núverandi heimsmeistari, Nodirbek Abdusattorov. Í kvennaflokki má finna flestar sterkustu skákkonur heims. Alexandra Kosteniuk, Kateryna Lagona, Tan Zhongyi og Aleksandra Goryachkina.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (Opinn flokkur)
- Beinar útsendingar (Kvennaflokkur)
- Bein lýsing (FIDE)
- Bein lýsing (Chess24)

















