Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2437) er meðal keppenda á Rilton Cup sem hófst í Stokkhólmi í gær. Í fyrstu umferð vann hann sænska alþjóðlega meistarann Axel Ornstein (2249). Í 2. umferð, sem fram fer í dag, teflir hann við ísrealska FIDE-meistarann Yotam Shohat (2294).
Alls tefla 136 keppendur í efsta flokki hátíðinnar og þar af 20 stórmeistarar. Margeir er nr. 35 í stigaröð keppenda.
Bræðurnir Adam (1693) og Jósef Omarssynir (1539) tefla í Rilton Elo sem er fyrir stigalægri keppendur. Adam gerði jafntefli í fyrstu umferð en Jósef tapaði.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14:15)
- Auglýsing -

















