Nakamura er efstur á HM í hraðskák. Mynd: FIDE/Lennart Ootes.

Bandaríkjamaðurinn Hikaru Nakamura (2909) er efstur eftir fyrri dag HM í hraðskák sem fram fór í dag í Almaty í Kasakstan. Magnús Carlsen (2830) er í 2.-6. sæti. Mikil spenna fyrir seinni dag hraðskákarinnar sem fram fer á morgun. Taflmennskan hefst kl. 8 svo það borgar sig að taka daginn snemma!

— International Chess Federation (@FIDE_chess) December 29, 2022

Staðan í opnum flokki.

Rússnesku skákkonurnar Polina Shuvalova (2361) og Valentina Gunina (2368) eru efstar í kvennaflokki.

Staðan í kvennaflokki. 

Taflmennskan á morgun hefst klukkutíma fyrr en venjulega eða kl. 8.

Meðal keppenda eru flestir sterkustu skákmenn heim. Þar á meðal Magnús Carlsen, Hikaru Nakamura, Fabiano Caruana, Ian Nepomniachiatchi og núverandi heimsmeistari, Nodirbek Abdusattorov.  Í kvennaflokki má finna flestar sterkustu skákkonur heims. Alexandra Kosteniuk, Kateryna Lagona, Tan Zhongyi og Aleksandra Goryachkina.

- Auglýsing -