Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2437) vann spænska FIDE-meistarann Miguel Ruiz Buendia (2257) í 3. umferð Rilton Cup sem fram fór í gær. Margeir er í 3.-24. sæti með 2½ vinning. Margeir mætir sænska alþjóðlega meistaranum Seo Jung Min (2502) í 4. umferð sem fram fer í dag.
Alls tefla 136 keppendur í efsta flokki hátíðinnar og þar af 20 stórmeistarar. Margeir er nr. 35 í stigaröð keppenda.
Bræðurnir Adam (1693) og Jósef Omarssynir (1539) tefla í Rilton Elo sem er fyrir stigalægri keppendur. Adam vann í þriðju umferð en Jósef tapaði. Adam hefur 2 vinninga en Jósef hefur 1 vinning.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14:15)
- Auglýsing -


















