Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.

Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).

———-

Landsliðskonan Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir fékk 4.5 vinning af 5 á Þriðjudagsmótinu milli jóla og nýjárs, þann 27. desember. Þrír skákmenn fengu 4 vinninga, þeir Gauti Páll Jónsson, Kristófer Orri Guðmundsson og Arnar Ingi Njarðarson. 22 skákmenn mættu til leiks. Verðlaun fyrir bestan árangur miðað við stig fékk Pétur Alex Guðjónsson (1287) með árangur upp á 1621 stig, og hækkar hann um heil 58 atskákstig.

Úrslit og stöðu mótsins má nálgast á chess-results.

Fyrsta Þriðjudagsmót nýja ársins verður þann 3. janúar og hefst klukkan 19:30. Rétt er að ítreka að mótin eru opin öllum, eins og kemur skýrt fram í auglýsingu mótanna. Reyndar eru öll mót TR opin öllum nema annað komi sérstaklega fram, eins og ef um barnamót sé að ræða.

- Auglýsing -