Margeir að tafli á Rilton. Mynd: Heimasíða mótsins/Lars OA Hedlund.

Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2437) gerði jafntefli við úkraínska stórmeistarann Platon Galperin í 6. umferð Rilton Cup sem fram fór í gær. Margeir hefur 4 vinninga og er í 14.-31. sæti. Sjöunda umferð fer fram í dag og teflir Margeir við stigahæsta keppenda mótsins, indverska stórmeistarann Krishnan Sasikiran (2635).

Alls tefla 136 keppendur í efsta flokki hátíðinnar og þar af 20 stórmeistarar. Margeir er nr. 35 í stigaröð keppenda.

Mótið á Chess-Results

Bræðurnir Adam (1693) og Jósef Omarssynir (1539) tefla í Rilton Elo sem er fyrir stigalægri keppendur. Adam vann og Jósef gerði jafntefli. Adam hefur 3 vinninga en Jósef hefur 2½ vinning.

Mótið á Chess-Results. 

- Auglýsing -