Á morgun, þriðjudaginn 3. janúar, kl. 13, kveðjum við kæran eftirminnilegan vin og skákfélaga með því að tefla í hans anda. Góð verðlaun og veitingar í boði Jóa útherja. Allir fyrri afmælismótagestir hans sérstaklega velkomnir óháð aldri. ÆSIR – FEB Stangarhyl 4

MAGNÚS V. PÉTURSSON – MINNINGARORÐ

Sár söknuður er nú að mörgum kveðinn við skyndilegt fráfall hins góða drengs og gleðigjafa, öðlingsins Magga Pé, enda stórt skarð höggvið m.a. í vinahóp eldri skákmanna. Öll erum við gestir í alheimsgarði og brottför okkar héðan til eilíðarlandsins ófyrirséð. Enda þótt MPé væri kominn fast að níræðu var hvergi bilbug á honum að finna við skákborðið og hann tefldi grimmt og og gerði að gamni sínu nánast til hinstu stundar.

Á síðari árum hefur Magnús ekki aðeins verið drjúgur við að tefla sjálfum sér til ánægju og yndisauka í hópi eldri borgara, heldur hefur hans ágæta fyrirtæki, áður Hoffell síðar Jói Útherji, stutt skákhreyfinguna og einstaka klúbba myndarlega til mótahalds um áratugaskeið. Gefið verðlaunagripi til viðburða á þeirra vegum auk þess að hafa klætt keppnislið Íslands í skák allra flokka í landsliðsbúninga þegar lagt er upp til keppni á erlendri grundu. Það fór því vel á því að SÍ skyldi sæma hann gullmerki sínu fyrir lofsvert framlag hans sem fór í safn 12 heiðursmerkja og viðurkenninga er honum hafði áður hlotnast frá íþróttahreyfingunni, Þrótti og öðrum félögum innan hennar.

Það fara margar skemmilegar sögur af frænknum ferli og framgöngu MPé á hinum ýmsu sviðum, dómarastörfum hans í handbolta og fótbolta, fjölda landsleikja og milli stórliða innanlands og utan, sem hann hafði gaman af að rifja upp, gantast og grínast með á góðum stundum enda léttleikans maður og hrókur alls fagnaðar öllum stundum. Hann vann sér líka margt til frægðar á skáksviðinu m.a. með jafntefli við Mikhail Tal, fv. heimsmeistara í skák í Moskvu 1957, sem líkti skákstil Magnúsar við Paul Morphy, eins mesta skáksnillings sem uppi hefur verið. MPé var “sterkur“ eins og hann sagði sjálfur, áhættusækinn ástríðuskákmaður sem hafði yndi af því að fórna mönnum, tefla í tvísýnu og enda svo iðulega skákir sínar með snilldartöktum, glæstri fléttu og máti.

Maggi Pé hefur síðan hann varð áttræður haldið upp á afmæli sitt með pomp og prakt með því að bjóða góðvinum sínum og skákfélögum til skákmóts, fyrst í höfuðstöðvum Jóa Útherja í Ármúla en nú síðustu árin í Stangarhyl. Hafa þar stórmeistarar Íslands iðulega mætt til tafls við gamlingjana. Að venju ætlaði MPé að fagna níræðisafmæli sínu með myndarlegu afmælismóti nú um áramótin en náði því því miður ekki. Þess í stað mun hans góða minning verða heiðruð þar með minningarmóti innar tíðar.

Mörg undanfarin ár höfum við átt samleið á mót eldri skákmanna tvisvar í viku og telft í mótum Ása, Riddara og Korpúlfa, okkur til upplyftingar og afþreygingar og notið þess í ríkum mæli. Einnig farið í skákleiðangra til útlanda í hópi KR-inga og eiginkvenna, m.a.til Danmerkur og Bretlands og víðar, sem og á hverju hausti árum saman í veiði- og skáktúra með dvöl yfir helgi hér innanlands. Nú er skarð fyrir skildi en minningin lifir.

Maggi Pé var gull af manni, góðhjartaður, gjafmildur og hvers manns hugljúfi. Afar eftirminnilegur og gegn maður genginn. Blessuð sé hans fagra minning.

Einar S. Einarsson

- Auglýsing -