BARION mótaröðin 2023 hefst á þriðjudagskvöldið 10. janúar.
Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2.
Teflt er í húsnæði Barion Mosó í Mosfellsbæ.
ATH skráningu lýkur 12.00 á þriðjudag.
Skráning á mótið hér: https://docs.google.com/forms/d/1tFmejwcpXOEXDcFgvGevA0cD2bSieshHgpM9lKDgtjU/edit#responses
Skráðir keppendur: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1G6o2E3pm_CIL6nDLNa3MZHLHzvrx9nqO-5zwrIMP–c/edit?resourcekey#gid=473163214
Sjá nánari upplýsingar um mótaröðina hér:
Chess After Dark menn hafa ákveðið að blása til enn frekari sóknar og kynna til leiks BARION mótaröðina 2023!
Fyrsta mótið fer fram þriðjudagskvöldið 10. janúar kl 20.00 á Barion Mosó.
Mótin verða fimm í heildina og eru dagsetningarnar á þeim hér:
- 10. Janúar
- 7. Febrúar
- 7. Mars
- 18. Apríl
- 5. September
Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2.
Á öllum mótunum verða verðlaun eftirfarandi:
- 50.000 krónur
- 30.000 krónur
- 20.000 krónur
U2000: 10.000 kr gjafabréf á Barion Mosó
U1600: 10.000 kr gjafabréf á Barion Mosó
Öll mótin verða reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.
12 efstu keppendurnir á samanlögðum vinningum (4 af 5 bestu mótum gilda) tefla svo til úrslita fyrstu helgina í október, þar verða verðlaunin eftirfarandi:
- 500.000 krónur
- 300.000 krónur
- 200.000 krónur
Frítt verður inn á öll mótin.















