BARION mótaröðin 2023 hefst á þriðjudagskvöldið 10. janúar.

Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2.

Teflt er í húsnæði Barion Mosó í Mosfellsbæ.

ATH skráningu lýkur 12.00 á þriðjudag.

Skráning á mótið hér: https://docs.google.com/forms/d/1tFmejwcpXOEXDcFgvGevA0cD2bSieshHgpM9lKDgtjU/edit#responses

Skráðir keppendur: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1G6o2E3pm_CIL6nDLNa3MZHLHzvrx9nqO-5zwrIMP–c/edit?resourcekey#gid=473163214

Sjá nánari upplýsingar um mótaröðina hér:

Chess After Dark menn hafa ákveðið að blása til enn frekari sóknar og kynna til leiks BARION mótaröðina 2023!

Fyrsta mótið fer fram þriðjudagskvöldið 10. janúar kl 20.00 á Barion Mosó.

Mótin verða fimm í heildina og eru dagsetningarnar á þeim hér:

  1. 10. Janúar
  2. 7. Febrúar
  3. 7. Mars
  4. 18. Apríl
  5. 5. September

Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2.

Á öllum mótunum verða verðlaun eftirfarandi:

  1. 50.000 krónur
  2. 30.000 krónur
  3. 20.000 krónur

U2000: 10.000 kr gjafabréf á Barion Mosó

U1600: 10.000 kr gjafabréf á Barion Mosó

Öll mótin verða reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.

12 efstu keppendurnir á samanlögðum vinningum (4 af 5 bestu mótum gilda) tefla svo til úrslita fyrstu helgina í október, þar verða verðlaunin eftirfarandi:

  1. 500.000 krónur
  2. 300.000 krónur
  3. 200.000 krónur

Frítt verður inn á öll mótin.

- Auglýsing -