Tata Steel-mótið hefst í Wijk aan Zee í Hollandi í dag. Eins og iðulega er mótið skemmtilega skipað. Margir sterkustu skákmenn heims og svo margir af efnilegustu skákmönnum heims. Af 14 keppendum efsta flokksins hafa 12 þeirra teflt á Reykjavíkurskákmótinu.
Keppendalisti Tata-Steel-mótsins
Áskorendaflokkurinn er einnig mjög skemmtilega skipaður. Reynslumiklir og yngri skákmenn í bland. Ritstjóra telst svo til að 10 af 14 keppenda flokksins hafi teflt á Reykjavíkurskákmótinu.
Keppendalisti áskorendaflokksins
Mótið hefst kl. 13 í dag. Carlsen teflir við Aronian.
Jorden van Foreest – Wesley So
Richard Rapport – Nodirbek Abdusattorov
Fabiano Caruana – Anish Giri
Gukesh D – Ding Liren
Parham Maghsoodloo – Vincent Keymer
Magnus Carlsen – Levon Aronian
Praggnanandhaa – Arjun Erigaisi
















