Verðlaunahafar á hraðskákmóti TR. Mynd: Heimasíða TR.

Hraðskákmót Reykjavíkur fór fram miðvikudaginn 8. febrúrar sl.  Stórmeistarefnið Vignir Vatnar Stefánsson varð hraðskákmeistari Reykjavíkur en hann hlaut 9 vinn. af 11 mögulegum.

Dagur Ragnarsson varð annar með 8½ vinn. og síðan komu þrír skákmenn jafnir í 3.-5. sæti með 7½ vinn. Ansi jöfn og spennandi keppni en Vignir byrjaði á að gera jafntefli við lærisvein sinn úr Breiðabliki, Matthías Björgvin Kjartansson þar sem hann mátti hafa sig allan við að ná jafntefli.

Lokastaðan á Chess-Results

Keppendur voru 32 og skákstjórn í höndum Ríkharðs Sveinssonar.

Af heimasíðu TR.

- Auglýsing -