Helgi Áss að tafli.

Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2451) er efstur á Skákhátíð Fulltingis að lokinni sjöttu og næstsíðustu umferð sem fram fór á miðvikudagkvöldið Helgi tók þá hálf vinnings yfirsetu. Helgi hefur unnið fjórar skákir og hefur tekið tvær hálfs vinnings yfirsetur. Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2458) er annar með 4½ vinning eftir jafntefli gegn Hjörvari Steini Grétarssyni (2544). Hjörvar og Bragi Þorfinnsson (2430) eru í 3.-4. sæti með 4 vinninga.

Úrslit 6. umferðar

Þess fyrir utan geta mögulega Jóhann Hjartarson (2476) og Þröstur Þórhallsson (2394) blandað sér í baráttuna um toppbaráttuna en viðureign þeirra var frestað. Þeir hafa báðir 3 vinninga (eru reiknaðir með 3½ vinning).

Staðan 

Sjöunda og síðasta umferð fer fram á mánudagskvöldið. Þá mætast meðal annars

  • Helgi Áss (5) – Hjörvar (4)
  • Vignir (4½) – Bragi (4)
  • Jóhann (3+fr) – Dagur Ragnarsson (3½)
  • Örn Leó (3½) – Björn Þorfinnsson (3½)
  • Ingvar Þór Jóhannesson (3) – Þröstur Þórhallsson (3+fr)

Pörun 7. umferðar

B-flokkur

Arnar Milutin Heiðarsson (2032) vann Lenku Ptácníková (2104) í lokaumferðinni. Þar með tryggði hann sér sigur á mótinu en han hlaut 5 vinninga. Lenka varð í 2.-3. sæti ásamt Gauti Pála, ritstjóra, Jónssyni (2045).

Lokastaðan á Chess-Results. 

 

 

- Auglýsing -