Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2451) var í miklu stuði á Skákhátíð Fulltingis sem lauk í gær í Garðabæ. Hann vann Íslandsmeistarann Hjörvar Stein Grétarsson (2544) í sjöundu og síðustu umferð. Helgi hlaut 6 vinninga og var heilum vinningi fyrir ofan næsta mann, Vigni Vatnar Stefánsson (2458). Það sem gerir frammistöðu Helga enn betri er að hann tók tvær hálf vinnings yfirsetur og náði því 100% árangri í þeim fimm skákum sem hann tefldi!
Segja má að Helgi hafi heldur betur staðið undir eigin slagorði á mótinu – Áfram Helgi!
Þrír stórmeistarar urðu í 3.-5. sæti. Það voru Bragi Þorfinnsson (2430), Jóhann Hjartarson (2476) og Þröstur Þórhallsson (2394).
Mótshaldið tókst vel hjá Garðbæingum og fór vel um mannskapinn í Vídalínskirkju undir fumlausri skákstjórn Páls Sigurðssonar sem hitaði þarna upp fyrir Íslandsmótið á Ásvöllum í maí. Einhver gárunginn hafði það að orði að á mótinu hafi biskup í fyrsta sinn verið drepinn í kirkju hérlendis.
















