Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2448) gerði tvö jafntefli gegn tveimur ungum Úkraínumönnum (2196-2201) í 5. og 6. umferð Graz Open sem fram fór í gær.
Margeir hefur 3½ vinning. Sjöunda umferð fer fram í dag.
171 keppandi frá 29 löndum taka þátt í efstu flokknum. Þar af eru 9 stórmeistarar. Margeir er nr. 11 í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Engar beinar útsendingar
- Auglýsing -















