Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) er eini fulltrúi Íslands á EM einstaklinga sem hefst í dag í Vrnjacka Banja í Serbíu.
Gríðarleg þátttaka er á mótinu en þátt taka 484 skákmenn frá 40 löndum. Þar af eru 126 stórmeistararar. Til samanburðar tóku 180 skákmenn þátt í sama móti í Hótel Natura 2021. Auðvitað við allt að aðrar aðstæður enda í miðjum heimsfaraldri. Ekki eru Norðurlandabúarnir margir í ár en þátt taka sex slíkir. Aðeins Danir senda meira en einn keppenda.
Vignir mætir Tyrkjanum Necmeetin Korkmaz (2106) í fyrstu umferð.
Vignir er nr. 154 í stigaröð keppenda. 23 efstu ávinna sér keppnisrétt í heimsbikarmótinu í skák.
- Auglýsing -















