Fyrstu tvær umferðir Chess Mates mótsins á Írlandi fóru fram í dag, föstudag. Um er að ræða landa/borgakeppni og er liðum raða í 4-liða riðla og keppt allir við alla. Íslenska liðið keppir algjöra úrslitaviðureign við lið Monaco um að komast áfram í undanúrslit í keppninni. Keppt er á 10 borðum, 2 keppendur í hverjum flokki frá U20 niður í U12.

Í fyrri viðureign dagsins lenti íslenska liðið á móti Sachsen-Anhalt héraðinu í Þýskalandi. Stærsta borgin í Sachsen-Anhalt er einmitt Magdeburg en þar eigum við handboltamenn í heimsklassa. Framan af viðureign var þó engin vinsemd frá íslenska liðinu. Fyrstur til að landa punkti fyrir íslenska liðið í þessari viðureign og í vonandi langri og góðri sögðu í Chess Mates viðburðum var hinn ungi Akureyringur, Sigþór Árni Sigurgeirsson.

Engilbert og Sigþór voru flottir í fyrstu umferðinni.

Hann setti tóninn og það virtist gefa góða raun og í kjölfarið gekk íslenska liðinu vel og eftir 7 viðureignir af 10 stóðu leikar 5-2 fyrir íslenska liðinu og sigurinn virtist nánast í höfn. Iðunn og Guðrún Fanney stóðu vissulega höllum fæti en Stephan Briem virtist hafa allt „undir control“ í sinni skák.

 

Stephan og Arnar í fyrstu umferðinni.

Eftir vel útfærða skák og fínan undirbúning missti Stephan hinsvegar þráðinn í tímahraki. Fyrst missti hann af vinningi með …Hxf3 á réttum tíma og svo Kg6-g5-f4 í endataflinu sem svartur á ekki að geta tapað. Óstuð hjá Stephan sem hann mun vafalítið kvitta fyrir þegar líður á mótið.

Niðurstaðan í fyrstu umferð 5-5 jafntefli.

Í seinni umferðinni mætti íslenska liðið sterkri sveit frá Rotterdam. Ekki gekk jafn vel framan af í þessari viðureign og aðeins kom hálfur vinningur í hús í fyrstu fjórum skákunum til að klárast.

Á tímabili leit þó út fyrir að íslenska sveitin ætlaði að ná úrslitum en Guðrún og Iðunn stóðu til vinnings ásamt því að Arnar og Stephan áttu fína möguleika og Þorsteinn í lítilli taphættu. Að viðbættu stuttu jafntefli Ingvars Wu hefði það nægt til vinnings. Heilladísirnar voru þó ekki á okkar bandi að þessu sinni og lokatölur 3.5-6.5 Rotterdam í vil.

Þrátt fyrir tapið er íslenska liðið með örlögin meira og minna í eigin höndum. Gera má ráð fyrir sigri Rotterdam á Sachsen-Anhalt og þá nægir íslenska liðinu að ná sigri gegn Monaco, jafntefli gæti jafntefli dugað til að komast í undanúrslit. Spennandi viðureign því framundan á laugadaginn, eldsnemma klukkan 09:30

Skákir 2. umferðar (ath, vírar fóru úr sambandi og því vantar upp á flestar skákirnar á efstu borðum)

3. umferðin hefst 09:30 og svo eru vonandi undanúrslit framundan 14:30 en ef ekki þá umspil um hvort spilað er um 5. sætið eða 7. sætið á sunnudeginum.

Mótið á chess-results

Beinar útsendingar

 

- Auglýsing -