Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) er eini fulltrúi Íslands á EM einstaklinga sem fram fer í Vrnjacka Banja í Serbíu.

Vignir Vatnar vann ungan serbneska FIDE-meistara, Aleksa Micic (2273), í þriðju umferð mótsins í gær. Vignir hefur 2 vinninga.

Fjórða umferð fer fram í dag og aftur teflir við Vignir við serbeskan FIDE-meistara. Sá hættir Bojan Todorovic (2249) og er á viskualdrinum. Fæddur 1971. Skákin verður sýnd beint á vefnum.

Bein slóð á skákina – hefst kl. 14:15.

Gríðarleg þátttaka er á mótinu en þátt taka 484 skákmenn frá 40 löndum. Þar af eru 126 stórmeistararar. Vignir er nr. 152 í stigaröð keppenda en 23 efstu ávinna sér keppnisrétt í heimsbikarmótinu í skák.

 

- Auglýsing -