Skákhlaðvarpið sneri til baka í gær þegar nokkrir misgóðir menn hittust og ræddu málin. Það voru Gunnar Björnsson, Gauti Páll Jónsson, Eiríkur Björnsson og Stefán Steingrímur Bergsson.
Gunnar og Gauti voru allan tímann en Eiríkur og Stefán skemmri stund. Einnig kíkti Helgi Ólafsson við í fundarherbergi Skáksambandsins og lét í sér heyra en tók takmarkaðan þátt í sjálfu Skákhlaðvarpinu.
Ýmislegt var rætt og má þar nefna.
- Íslandsmót skákfélaga – Víkingar eða TG?
- Tímaritið Skák – ertu búinn að tryggja þér eintak?
- Reykjavíkurskákmótið – Verður metið 100+?
- Skáksprengjan – hvar endar þetta?
Heyrn er sögu ríkari!
- Auglýsing -















