Vignir að tafli. Mynd: Facebook-síða mótsins.

Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið í boði Kviku og Brim er nú hafið í Hörpu. Hefðbundnar beinar útsendingar frá skákum má nálgast á eftirfarandi stöðum:

Chess.com – https://www.chess.com/events/2023-reykjavik-open/games

Chess24 – https://chess24.com/en/watch/live-tournaments/kvika-reykjavik-open-2023/1/1/1

Lichess – https://lichess.org/broadcast/reykjavik-open-2023/round-4/QrJxecDP

 

Ýmsir möguleikar eru til að fylgjast með skákskýringum.

Anna Cramling er vinsæll streamer og mamma hennar, stórmeistarinn Pia Cramling mun lýsa skákum hennar og eftir atvikum öðrum skákum.

https://www.twitch.tv/annacramling

Alexandra Botez hefur yfir milljón fylgjendur. Hún er einnig í beinni og stórmeistarinn Jon Ludvig Hammer lýsir hjá henni.

https://www.twitch.tv/botezlive

Stórmeistarinn Simon Williams er mættur enn eina ferðina til Íslands. Hann hefur marga aðdáendur enda með skemmtilegan skákstíl og einstaklega viðkunnalegur og hress. Hann er með gesti að skýra sínar skákir.

https://www.twitch.tv/gingergm

Loks er kvenstórmeistarinn Dina Belenkaya með beint frá sínum skákum.

https://www.twitch.tv/thebelenkaya

 

 

- Auglýsing -