Íslandsmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson er efstur Íslendinga á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu. Hjörvar er með 3,5 vinning að loknum 4 umferðum og hefur unnið allar sínar tefldu skákir. Indverjarnir Abhijeet Gupta og V Pranav eru einu keppendurnir sem hafa fullt hús. Gupta virðist kunna vel við sig í Reykjavík en hann var efstur ásamt nokkrum öðrum árið 2010 og vann svo mótið einn árið 2016.

Engilbert Viðar Eyþórsson er sá Íslendingur sem er að hala inn flest stigin. Eftir fjórar umferðir er Engilbert með rétt rúmlega 91 stig í plús eftir að hafa lagt skákmann með um 2000 elóstig að velli en sjálfur er Engilbert með 1442 skákstig.

Hilmir Freyr Heimisson er í góðum málum með 3 vinninga af 4 og fær algjöra lykilskák í fimmtu umferð með hvítu gegn Kassa Korley (2468). Með sigri opnast glugginn á áfanga að stórmeistaratitli þó enn sé fullt snemmt að hrósa happi eins og áður hefur komið fram. Hilmir er hinsvegar á góðu skriði undanfarið og ritstjórnin hefur fulla trú á honum!

Segja má að framundan séu lykilumferðir. Tvær umferðir fara fram á morgun og nú byrja stórmeistararnir að mætast fullum hálsi og auk þess líkur hinni svokölluðu Baku-pörun þar sem keppendum er skipt í hópa. Því má að mörgu leiti segja að línur munu skýrast hratt eftir umferðirnar á laugardeginum.

Teflt er klukkan 09:00 og svo aftur klukkan 16:00. Skákskýringar verða í boði. Dagur Ragnarsson tekur að sér morgunumferðina og hefur skýringar um 11:00. Skýringar í seinni umferðinni hefjast um 18:00.

 

- Auglýsing -