Séð yfir keppnissalinn. Mynd: Halla

Fjórða umferð Reykjavíkurskákmótsins sem er í boði Kviku eignastýringar og Brims hefst kl. 15 í dag.

Vignir Vatnar Stefánsson (2461) teflir við franska stórmeistarann Maxime Lagarde (2581) og Hjörvar Steinn Grétarsson (2538) mætir þýska stórmeistaranum Rainer Knaak (2455).

Pörun 4. umferðar

Skákskýringar í umsjón alþjóðlega meistarans Dags Ragnarssonar hefjast kl. 17.

Um kl. 21 hefst svo hið fræga Reykjavik Open Pub Quiz sem er umsjón CAD-bræðra og Ingvars Þórs.

 

- Auglýsing -