Hið árlega pubquiz er fyrir löngu orðinn fastur og vinsæll viðburður á Reykjavíkurskákmótinu. 30 skáktengdar spurningar og keppt er í liðakeppni. Fyrri sigurvegarar eru t.a.m. Magnus Carlsen og fleiri sterkir skákmenn.

Vel var mætt og fjöldi liða mætt til að sýna þekkingu sína á skák og skáksögunni. Þeir CAD bræður Birkir og Leifur tóku að sér að sjá um að þennan hliðarviðburð sem og hraðskákmótið sem fram fer í kvöld.

Spurningarnar voru ef til vill örlítið léttari en oft áður og voru 3 lið með yfir 27 stig af þeim 30 sem voru í boði. Á endanum hafði íslenskt lið sigur með 28,5 stig af 30 sem er ansi góður árangur!

Einn af sigurvegurunum var Gauti Páll Jónsson og heldur undirraður að hann fari með rétt mál að Gauti er fyrsti Íslendingurinn til að vinna sigur á Quizzinu í tvö skipti! Áður vann Gauti með Aðalstein Thorarsen sér til liðsinnis.
Sigurliðið hét jú lika „Hvar er Aðalsteinn Thorarensen“ og var skipað ásamt Gauta af þeim Degi Ragnarssyni, Ármanni „local hero“ og Elvar Erni Hjaltasyni.




Spurningasmiður var eins og undanfarin ár Ingvar Þór Jóhannesson.
Eitt stig er gefið fyrir rétt svar í hverri spurningu. Ef spurt er um tvo hluti er hálft stig í boði fyrir hvert svar.
Spurningar með svörum má svo nálgast hér

















