Spennandi lokaumferðir eru framundan á Reykjavíkurskákmótinu í boði Kviku og Brim. Þrír stórmeistarar eru efstir og jafnir eftir umferð dagsins og ljóst að mikil barátta er framundan.
Abhijeet Gupta og Maxime Lagarde voru efstir fyrir umferðina og mættust á efsta borði. Jafntefli varð niðurstaðan í þeirri skák. Lukasz Turlej aðalritari FIDE lék fyrsta leiknum á efsta borði.

Þessi úrslit gáfu keppendum fyrir neðan tækifæri á að ná í forystusauðina og Tyrkinn Mustafa Yilmaz nýtti færið og vann góðan sigur á þriðja borði.

Efstu Íslendingar á mótinu eru í 16-44. sæti með 5 vinninga af 7. Guðmundur Kjartansson fer þar fremstur í flokki en hann mætir einum af „áhrifavöldunum“ Dinu Belenkayu sem hefur farið mikinn það sem af er móti og lagt tvo stórmeistara að velli. Sigurbjörn Björnsson, Björn Þorfinnsson, Hannes Stefánsson og Þröstur Þórhallsson eru einnig í þessum hópi.
Áttunda umferð hefst klukkan 15:00 á morgun, mánudag og skákskýringar eins og venjulega ca. tveim tímum eftir upphaf umferðar. Yilmaz mætir Lagarde á efsta borði.



- Mótið á chess-results
- Myndaalbúm (Þorsteinn Magnússon)
- Myndaalbúm (Hallfríður Sigurðardóttir)
- Útsendingar skáka á Chess.com
- Útsendingar skáka á Chess24
- Útsendingar á lichess: lichess
- Áhrifavaldar sem sýna frá mótinu:
- https://www.twitch.tv/annacramling
- https://www.twitch.tv/botezlive
- https://www.twitch.tv/gingergm
- https://www.twitch.tv/thebelenkaya
















