Áttunda og næstsíðasta umferð Reykjavíkurkákmótsins sem er í boði Kviku eignastýringar og Brims hefst kl. 15 í dag.
Sigurbjörn Björnsson, Guðmundur Kjartansson, Björn Þorfinnsson, Þröstur Þórhallsson og Hannes Hlífar Stefánsson eru efstir íslensku keppendanna með 5 vinninga.
Þröstur teflir við ungverska stórmeistarann Tamas Banusz (2616). Björn við indverska stórmeistarann Nr Visakh (2538), Guðmundur við samfélagsstjörnuna Dinu Belenkaya (2300), sem er stórmeistari kvenna og Hannes og Sigurbjörn tefla saman
Skákskýringar Helga Ólafssonar hefjast um kl. 17.
Frábær þátttaka var í Hörpu Blitz í gær þar sem 180 skákmenn tóku þátt. Langstærsta hraðskákmót allra tíma hérlendis! Mótinu verður gerð betur skil í sérfrétt.
- Mótið á chess-results
- Myndaalbúm (Þorsteinn Magnússon)
- Myndaalbúm (Hallfríður Sigurðardóttir)
- Útsendingar skáka á Chess.com
- Útsendingar skáka á Chess24
- Áhrifavaldar sem sýna frá mótinu:
- https://www.twitch.tv/annacramling
- https://www.twitch.tv/botezlive
- https://www.twitch.tv/gingergm
- https://www.twitch.tv/thebelenkaya
- Auglýsing -















