Alls eru fimm skákmenn efstir og jafnir fyrir lokaumferð Reykjavíkurskákmótsins í Hörpu. Jafntefli varð á efsta borði í viðureign Mustafa Yilmaz og Maxime Lagarde. Það þýddi að þrír skákmenn gátu náð þeim að vinningum sem þeir og gerðu. Sænski stórmeistarinn Nils Grandelius sem hefur teflt á fjölmörgum Reykjavíkurskákmótum en aldrei unnið notaði tækifærið og lagði Abhijeet Gupta að velli. Þeir Quentin Loiseau og Gabor Papp komu svo hálfpartinn frá hlið og hafa jafnað efstu menn með góðum sigrum í síðustu umferðum. Þessir hafa allir 6,5 vinning og ljóst að sigurvegari mótsins kemur úr þessum hópi.

Af þessum stórmeisturum er Nils Grandelius í einna bestu stöðunni þegar kemur að oddastigum og vegna þess að hann mun hafa hvítt í lokaumferðinni. Grandelius mæti Frakkanum Loiseau og er í dauðafæri á að vinna Reykjavíkurskákmótið í fyrsta skipti eins og áður sagði. Papp fær hvítt á Yilmaz og loks er Lagarde óheppinn þar sem hann fær hvítt gegn Ivanchuk sem er ansi erfitt að leggja að velli.
Hannes Hlífar Stefánsson er orðinn efstur íslensku keppendanna með 6 vinninga en hann hefur fengið 4,5 vinning í síðustu 5 umferðum. Með 5,5 vinning koma svo Guðmundur Kjartansson, Alexander Domalchuk-Jonasson og Stephan Briem. Stephan hefur unnið núna 3 skákir í röð.

Lokaumferðin fer fram klukkan 11:00 í Hörpu, skákskýringar hefjast um eittleytið og mögulega fyrr eftir atvikum. Lokahóf er svo í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 17:00.
- Auglýsing -