Úkraínski stórmeistarinn Vasilí Ivantsjúk er sá erlendi keppandi sem mesta athygli vekur á Reykjavíkurskákmótinu sem hófst í Hörpu á miðvikudaginn. Mótið hefur verið betur skipað en glæsilegt samt og gríðarlega mikilvægt einkum fyrir yngri skákmenn Íslands. Eftir þriðju umferð hafði Ivantsjúk unnið allar skákir sínar og var í efsta sæti ásamt níu öðrum keppendum. Enginn íslenskur kepppandi er með fullt hús en efstir voru Hjörvar Steinn með 2½ vinning ásamt Vigni Vatnari, Ögmundi Kristinssyni, Haraldi Haraldssyni og Bjarna Sæmundssyni.
Reykjavíkurskákmótið í ár er það fjölmennasta frá upphafi með 401 skráðan keppanda. Þessi fjöldi vekur athygli en eftir Covid-faraldurinn hafa stór opin mót sem haldin hafa verið t.d. á Gíbraltar eða Grenke-mótið í Þýskalandi fallið niður. Þó er fastlega búist við því að þar um slóðir verði aftur blásið til leiks.
Hin glæsilegu salarkynni Hörpu hafa talsvert aðdráttarafl þrátt fyrir að tónlistarflutningur berist úr sölum hússins. Keppendur kvarta þó lítið og sumir mæta til leiks vopnaðir eyrnatöppum. Stórkostlegt útsýni yfir Faxaflóahafnir eykur við upplifun keppenda sem margir eru að tefla hér í fyrsta sinn.
Aftur að Ivantsjúk. Hann átti í erfiðleikum í báðum skákum fimmtudagsins. Einkum var staða hans viðsjárverð í seinni umferðinni þegar hann tefldi við einn af þessum grjóthörðu indversku skákmönnum sem sett hafa mikinn svip á síðustu Reykjavíkurskákmót:
REK-mótið 2023; 3. umferð:
Panchanathan – Ivantsjúk
Síðasti leikur svarts var 25. … Hc8-c7. Hvítur hafði réttilega fórnað manni á e5. Kóngsstaða svarts er afar viðkvæm og nú lék Indverjinn …
26. Rh6+?!
Þessi leikur ætti að duga til sigurs en það er flókin leið. Vinning var að hafa með 26. Bxb7 og einnig vinnur 26. h6!, sem Ivantsjúk fullyrti að væri besti leikurinn því að eftir t.d. 26. … Rg6 kemur glæsileg drottningarfórn, 27. Dxe8+! Dxe8 28. hxg7! og svartur er gjörsamlega varnarlaus gagnvart riddaraskák á f6 eða h6.
Svartur leikur betur með 26. … Re6 en eftir 27. hxg7 R8xg7 28. Rh6+ Kh8 29. Bh3! á hvítur unnið tafl.
26. … Kh8 27. Df5??
„Vélarnar“ gefa upp vinningsleið sem hefst með 27. Bxb7 Hxb7 28. Hd3! f6 29. Dd5! o.s.frv.
27. … Bxg2
Nú er eftirleikurinn auðveldur.
28. Bxg7+ Rxg7 29. Rxf7+ Hxf7 30. Dxf7 Bh1 31. e4 Bxe4 32. h6 Rge6 33. g6 Bxg6 34. Df6+ Kg8
– og hvítur gafst upp.
Hvílík beygla
Það hefur verið talsvert um óvænt úrslit á mótinu. Ein okkar sterkasta skákkona, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, vann glæsilegan sigur á mun stigahærri skákmanni frá Þýskalandi í 3. umferð. Hún kvaðst sjaldan eða aldrei hafa teflt þvílíka skák. Hvað getur maður svo sagt um liðsafnað hvíts á drottningarvæng undir lok skákarinnar? Ja, hvílík beygla:
Patrick Terhuven – Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
Vængtafl
1. Rf3 g6 2. g3 Bg7 3. Bg2 e5 4. d3 d5 5. O-O Rc6 6. c4 Rge7 7. cxd5 Rxd5 8. Rc3 Rce7 9. Db3 c6 10. Hd1 O-O 11. e4 Rc7 12. Be3 Re6 13. Ra4 b6 14. Hac1 c5 15. a3 Rc6 16. Da2 Red4 17. Rxd4 Rxd4 18. Bxd4 cxd4 19. b4 Be6 20. Db2 Bh6 21. Hc2 Dd7 22. b5 Hfc8 23. Hb1 Hxc2 24. Dxc2 Hc8 25. Db2 Dc7 26. Bf1 Bc1 27. Da1 Dc2 28. Rb2 Hc3
29. h4 Dd2 30. Be2 Hc2 31. Rd1 Ha2
– og hvítur gafst upp.
Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku eftir að þeir birtast í Morgunblaðinu. Skákþáttur þessi birtist 1. apríl 2023
















