Leikar eru nú jafnir í Astana 6-6 eftir að Ding Liren vann sigur í háspennuskák gegn Ian Nepomniachtchi.
Ding kom enn á óvart með byrjanavali sínu. Hann valdi Colle-kerfið sem er róleg byrjun og hvítur ekki líklegur að fá mikið út úr byrjuninni á hæsta stigi skákarinnar. Ljóst að Ding vill einfaldlega fá miðtaflsstöður og tefla þær, þó jafnar séu.
Leikur Nepo 6…Bd7 var furðulegur í byrjuninni.
Ding hefði mögulega getað fengið eitthvað út úr byrjuninni með 7.Re5 í þeirri stöðu en tefldi þess í stað rólega og svartur virtist komast upp með tempó-tapið Bc8-d7-g4.
Nepo tók á sig tvípeð og ljóst var að baráttan yrði á kóngsvæng. Í næstu leikjum gripu báðir til vopna þar.
Svartur virtist taka yfirhöndina með 20…Rh4!
Staða Ding hrörnaði með hverjum leiknum og loks taldi hann að hann yrði að leita sér mótspils.
Ding lék hér 24.c4 til að reyna að þyrla ryki. Framhaldið tefldi Nepo vel en þá tók við hryna afleikja hjá báðum.
Eftir 27.Dxc4 lék Nepo 27…Hag8? þegar 27…Rf3 hefði tryggt honum áframhaldandi betra tafl. Eftir 28.Dc6 átti Nepo 28…Rf5! en missti af þeim möguleika ítrekað og notaði fáranlega lítinn tíma á köflum í krítískum stöðum.
Caruana: "I think Ian is in danger, despite what the eval bar is saying… I don't understand this decision to rush every move. You have maybe one chance in your lifetime… how can you play every move like it's a Titled Tuesday game?"#NepoDing pic.twitter.com/QUoO54siY5
— chess24.com (@chess24com) April 26, 2023
Eftir afleikjahrynu var Ding loks kominn inn í skákina eftir 30.Be4. Ding hélt aðeins betri tafli, vann peð en skákin enn tvísýn. Nepo lék þá skelfilega af sér.
34…f5?? var skelfilegur leikur og eftir 35.Hxe6 getur svartur ekki varist hinni einföldu d5+ hótun.
Mikilvægur sigur hjá Ding sem jafnar leikana og nú er spurning hvort Nepo nái hausnum í lag!
Ian Nepomniachtchi was so close to every chess player's dream!#NepoDing pic.twitter.com/flGmmvlFFO
— chess24.com (@chess24com) April 26, 2023
Skákin
Einkunnabókin

Eins og sjá má á grafinu er þetta mest sveiflukennda skákin hingað til í einvíginu og jafnframt lang lægsta Accuracy skorið.
13. skákin fer fram á morgun, Nepo með hvítt. Lokaskákin er svo á laugardaginn þar sem að Ding hefur hvítu mennina.
- Heimasíða heimsmeistaraeinvígisins
- Beinar lýsingar (FIDE)
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Beinar lýsingar (Chess.com)















