Þeir Ding Liren og Ian Nepomniachtchi skildu jafnir í 14. og síðustu einvígiskappskákinni. Þeir munu tefla til þrautar á morgun, fjórar atskákir með 25+10 tímamörkum og svo hraðskákum og armageddon ef á þarf að halda.
Skák dagins hófst með 1.d4 og Nimzo-indverskri vörn. Virist taflið ætla að vera nkkuð eðlilegt og rólegt
Ding kom þá vel á óvart með 12.Rg5 og eftir 12…h6 13.h4, mjög aggressíf taflmennska.
Lítið varð þó úr sóknartilburðum Kínverjans og fljótt skiptist upp á drottningum. Ding gaf svo strax peð fyrir óljós færi sem leit út fyrir að vera algjör óþarfi.
21.Rc5?! var leikið en 21.Bf3 ætti að halda í horfið.
Í hnd fór löng og ströng skák þar sem Ding þurfti að finna góða leiki og jafnframt treysta á ákveðna hvatvísi á köflum hjá Nepomniachtchi til þess að halda velli.
Á endanum var jafnteflið í höfn í 90 leikjum!
After 83 moves spanning 6 hours and 32 minutes, this is now the longest game of the 2023 FIDE World Championship. #NepoDing pic.twitter.com/ZHx7kP8n4a
— Chess.com (@chesscom) April 29, 2023
Einkunnabókin

Ding fær hvítt í fyrstu atskákinni á morgun sem hefst 09:00 að íslenskum tíma.
Ding Liren will have white pieces in the first rapid game of the tiebreak for the World Championship title.
This time it was his turn to choose between the two boxes, because Ian Nepomniachtchi did it for the classical part. #NepoDing pic.twitter.com/Kbk5G5EXpp
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 29, 2023
- Heimasíða heimsmeistaraeinvígisins
- Beinar lýsingar (FIDE)
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Beinar lýsingar (Chess.com)

















