Guðmundur Kjartansson (2402) og, Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338) taka þátt í alþjóðlegu móti í München í Þýskalandi.
Sjötta umferð af níu fór fram í gær. Guðmundur lagði ísraelska alþjóðlega meistarann Yari Parkhov (2505) að velli. Gummi hefur 5 vinninga og er í 2.-8. sæti aðeins hálfum vinningi á eftir serbneska stórmeistaranum Alexey Sarana (2685) sem er sá eini sem unnið hefur Gúmma.
Aleksandr vann hollensku skákkkonuna Anna-Maja- Kazarian (2170) og hefur 4 vinninga.
Tvær umferðir fara fram í dag og sú fyrri hefst kl. 8. Guðmundur teflir við þýska alþjóðleag meistarann Aaximilian Berchtenreiter (2483) og Aleksandr við ítalska stórmeistarann Pier Lugi Basso (2520).
162 skákmenn taka þátt í mótinu og þar af eru 12 stórmeistarar. Guðmundur er nr. 25 í stigaröð keppenda en Aleksandr er nr. 36.
















