Guðmundur Kjartansson (2402) og, Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338) taka þátt í alþjóðlegu móti í München í Þýskalandi.
Í gær fóru fram 7. og 8. umferð. Aleksandr gekk einkar vel. Hann vann ítalska stórmeistarann Pier Luigi Basso (2520) og gerði jafntefli við indverska stórmeistarann Sundar Shyam (2502). Guðmundur gerði jafntefli og tapaði í gær. Félagarnir hafa 5½ vinning og eru í 11.-23. sæti.
Lokaumferðin fer fram í dag og hefst kl. 7:30. Aleksandr fær áfangaskák. Sigur í dag gegn austurríska FIDE-meistaranum Konstantin Peyrer (2405 tryggir honum sinn annan áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.
162 skákmenn taka þátt í mótinu og þar af eru 12 stórmeistarar. Guðmundur er nr. 25 í stigaröð keppenda en Aleksandr er nr. 36.
- Auglýsing -














