Guðmundur að tafli. Mynd: Fiona

Guðmundur Kjartansson (2402) og, Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338) tóku þátt alþjóðlegu móti sem lauk í gær í München í Þýskalandi.

Guðmundur gerði jafntefli við indverska stórmeistarann Chakkravathy Deepan (2435) í lokaumferðinni. Guðmundur hlaut 6 vinninga og endaði í 13.-22. sæti.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338) tapaði. Hann hlaut 5½ og endaði 23.-45. sæti. Tapaði áfangaskák í lokaumferðinni.

Báðir hækka þeir á stigum. Gummi um 15 stig og Sasha um 14 stig.

162 skákmenn tóku þátt í mótinu og þar af voru 12 stórmeistarar.  Guðmundur var nr. 25 í stigaröð keppenda en Aleksandr var nr. 36.

- Auglýsing -