Fjöld Íslendinga teflir erlendis í sumar. Tvö mót eru í núna í gangi og þrjú til viðbótar bætast við á allra næstu dögum.
Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2444) tekur þátt í Pula Open í Króatíu. Hann gerði jafntefli í gær og hefur 4½ að loknum sex umferðum.
Sjöunda umferð fer fram í dag.
Í gær hófst Prag Open í Téiklandi. Þar tefla átta Íslendingar. Öll úrslit þeirra fyrstu umferðar urðu eftir bókinni. Þeir stigahærri unnu sínar skákir en þeir stigalægri töðuðu.
Hilmir Freyr Heimisson (2413), Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2359), Bárður Örn Birkisson, (2179), Alexander Oliver Mai, (2128), Björn Hólm Birkisson (2121) og Aron Þór Mai (2077),
Davíð Kolka (1959) og Jóhann H. Ragnarsson (1908) töpuðu.
Önnur umferð fer fram. Bárður Örn mætir þýska stórmeistaranum Michael Hoffmann (2417).
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)
Dagana 23.-25. júní fer fram HSG-Open í Hollandi. Þeir tefla Björn Þorfinnsson og Gauti Páll Jónsson.
Jóhann Hjartarson teflir á Dortmund Sparkassen Meeting sem fram fer 24. júní-2. júlí.
Hannes Hlífar Stefánsson teflir á sterku opnu móti í Tenerife sem fram fer 25. júní – 2. júlí.
















