Mótin í České Budějovice kláruðust í dag, bæði opni flokkurinn og GM flokkurinn. Josef Omarsson teflir í Serbíu og Guðmundur og Hannes tefla á Spáni. Benedikt Briem er mauðr dagsins en hann kláraði mótið með stæl, í skiptu 2. sæti ásamt Vignir Vatnar Stefánssyni. Frábær árangur, sérstaklega þar sem Benedikt var númer 28 í styrkleikaröðun fyrir mótið.
Vignir Vatnar Stefánsson (2487) mætti Indverjanum Ameya Audi (2390) í lokaumferðinni með svörtu. Vignir þurfti að vinna til að ná efsta sætinu skiptu með Audi. Vignir tefldi Sikileyjarvörn og tókst að fá smá ójafnvægi í stöðuna. Vignir fórnaði drottningu fyrir hrók og biskup og hafði eitthvað spil en Indverjinn náði að verjast og stýra skákinni í jafntefli. Vignir endar því með 7 af 9 í skiptu 2-3. sæti og tapar 5 elóstigum á mótinu.
Benedikt Briem (2127) fékk Finnann Markus Kiili (2174) í lokaumferðinni. Benedikt kórónaði þar frábæran endasprett og vann sína þriðju skák í röð. Benedikt var jafnframt taplaus og endar mótið með 7 vinninga af 9 eins og Vignir. Þar að auki erum við að tala um 80 stiga hækkun og Benedikt aftur kominn yfir 2200 elóstigin.
Ég er búinn að vera duglegur að skoða vídeó á VignirVatnr.is og það hefur klárlega hjálpað!
Skákin í dag var baráttuskák í kóngsindverja. Benedikt hélt ágætis stjórn á stöðunni en lék ónákvæmt í 19. leik og gaf svörtum kost á hættulegum færum eftir 19…Rfg4. Finninn sá það hinsvegar ekki og fór staðan hans þess í stað með hraðbyri í skrúfuna og Benedikt vann í 26 leikjum.
Bárður Örn Birkisson (2199) var næstur Íslendingana með 6 vinninga af 9. Hann lagði London-system hins tékkneska Lada Zelbova (1894) í lokaumferðinni og vann tiltölulega auðveldan sigur í 26 leikjum. Bárður má vel við una en tapar engu að síður elóstigum á mótinu. Má að mestu skrifa það á fjölda ungra skákmanna með alltof lág elóstig miðað við getu.
Björn Hólm Birkisson (2137) kláraði einnig vel og vann í lokaumferðinni. Hann endar með 5,5 vinning eftir stöðubaráttubarning gegn Vaclav Bartos (2019). Björn tapar töluvert af stigum þrátt fyrir ágætis vinningafjölda.
Þeir Alexander Oliver Mai (2137), David Kolka (1938) og Aron Þór Mai (2037) töpuðu allir í lokaumferðinni og gáfu eftir seinni part móts eftir fína spretti.

Hilmir Freyr Heimisson (2404) átti ekki gott mót í GM flokknum í Ceske Budejovice og gerði stutt jafntefli í lokaumferðinni. Hilmir endar með 2,5 af 9 og tapar 24 elóstigum.

Josef Omarsson (1710) fékk skottu í 4. umferðinni og mætir því úthvíldur í 5. umferðina.

Þeir félagar Hannes Hlífar Stefánsson (2531) og Guðmundur Kjartansson (2429) hófu leik í gær í Valencia á Spáni. Báðir unnu þeir sigur í fyrstu umferðinni.
Hannes fékk hvítt í dag gegn franska FIDE meistaranum Nicolas Dubreuil (2177) en þeir eru jafnaldrar. Hannes beitti 6.h3 afbrigðinu gegn Najdorf sikileyjarvörninni. 10. leikur svarts 10…h5? var slakur og Hannes tefldi framhaldið af miklum krafti og vann nokkuð auðveldlega.
Guðmundur fékk líka hvítt, gegn Jose Ferrer Moreno (2115) frá Spáni. Spánverjinn leyfði Guðmundi full auðveldlega að nýta sér veikleika á svörtum reitum. Eiginlega sjokkerandi að sjá svona taflmennsku hjá 2100+ leikur sjálfviljugur h5 og grefur hvítreitabiskup sinn algjörlega inni. Það má segja að aftur hafi þetta verið spurning um smá raðtækni hjá Guðmundi sem vafðist ekki fyrir honum.















