Landliðsþjálfarar í opnum flokki og kvennaflokki hafa tilkynnt val sitt á landsliðum Íslands á EM landsliða sem fram fer í Budva í Svartfjallalandi dagana 11.-20. nóvember nk. Allir sem leitað var til gáfu kost á sér.
Landslið Íslands í opnum flokki skipa (í stigaröð)
- GM Hannes Hlífar Stefánsson (2532)
- GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2522)
- GM Vignir Vatnar Stefánsson (2487)
- GM Guðmundur Kjartansson (2444)
- IM Hilmir Freyr Heimisson (2404)
Landsliðsþjálfari er Helgi Ólafsson.
Vignir og Hilmir eru í fyrsta skipti að tefla í landsliði Íslands. Vignir var reyndar valinn í ólympíuliðið 2022 en gat ekki teflt vegna Covid-greiningar skömmu fyrir brottför til Indlands. Hannes, Hjörvar og Guðmundur eru allir þrautreyndir landsliðsmenn.

Landslið Íslands í kvennaflokki skipa (í stigaröð)
- WIM Olga Prudnykova (2228)
- WGM Lenka Ptácníková (2139)
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (2014)
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1942)
- WIM Lisseth Acevedo Mendez (1810)
Landsliðsþjálfari er Ingvar Þór Jóhannesson. Olga er að tefla í fyrsta skipti fyrir Íslands hönd. Allar hinar eru þrautreyndar landsliðskonur.















