Norðurlandamót skólasveita fer fram á Laugarvatni dagana 29. september – 1.október. Teflt er í tveimur flokkum. Eldri flokkur (1.-10. bekkur) og yngri flokkur (1.-7. flokkur). Aldursflokkarnir miðast við skólaárið 2022-23.
Teflt verður í íþróttahúsinu á Laugarvatni.
Fyrir Íslands hönd taka þátt Vatnsendaskóli (báðir flokkar), Landakotsskóli (eldri flokkur) og Lindaskóli (yngri flokkur).
- Auglýsing -















