Guðmundur Kjartansson vann í dag sína sjöttu skák í röð á opna mótinu í Valencia á Spáni. Guðmundur því enn með fullt hús. Hannes vann einnig og voru skákirnar báðar skemmtilegar hjá þeim félögum. Josef tapaði sinni skák í Paracin í Serbíu.

Íslensku landsliðsmennirnir Hannes Hlífar Stefánsson (2531) og Guðmundur Kjartansson (2429) sitja báðir að tafli í Valencia á Spáni þessa dagana. Guðmundur hafði 5/5 fyrir umferðina en Hannes 4/5.
Guðmundur mætti pólska alþjóðlega meistaranum Radoslow Barski. Guðmundur hafði hvítt og upp kom kóngsindversk vörn. Okkar maður valdi g3 afbrigðið „fianchetto“ og svartur lék sjaldgæfum leik, 7…Bd7. Pólverjinn fórnaði peði fyrir biskupparið. Í stað þess að setja pressu á Guðmund var það Guðmndur sem setti í fluggír og blés til hressilegrar sóknar á kóngsvæng. Kóngur hvíts fylgdist vel með á h3 reitnum og Guðmundur klossmátaði andstæðing sinn, hressilega teflt!
Hannes hafði hvítt gegn litháenska stórmeistaranum Ilmars Starostits (2403). Upp kom Caro-Kann vörn og Hannes tefldi vel. Ilmars fórnaði peði en Hannes einfaldlega át það og var sjálfur með sóknarfæri. Báðir fórnuðu drottningu en hvorugur tók boðinu. Hannes forðaðist vel allt sprikl hjá Ilmars og sigldi góðum sigri í höfn.
Í sjöundu umferðinni fá þeir félagar báðir svart. Guðmundur mætir fyrrverandi 2700-stiga manninum Baadur Jobava (2566) en hann er stigahæsti maður mótsins. Hannes fær enska alþjóðlega meistarann Harry Grieve (2459).

Josef Omarsson (1710) vann góðan sigur í gær þegar hann lagði kínverskan alþjóðlegan meistara kvenna WIM Fanghui Sun (2228). Sú kínverska var greinilega ekki ánægð með árangurinn á mótinu og ákvað að draga sig úr leik.
Josef náði ekki að fylgja eftir sigrinum í skák dagsins en hann tapaði fyrir Indverjanum Kedar Morvekar (2049).
Á morgun mætir Josef ungri rússneskri skákkonu. Diana Preobrazhenskaya. Þokkalega stafaruglið þar á ferð! Diana er fædd 2011 eins og Josef og hefur 2008 elóstig!















