Heimkaupsmótið: Íslandsmót ungmenna (u8-u16)

    0
    874
    Hvenær:
    4. nóvember, 2023 @ 13:00 – 17:00
    2023-11-04T13:00:00-01:00
    2023-11-04T17:00:00-01:00
    Hvar:
    Miðgarður
    Vetrarbraut 18
    210 Garðabær
    Ísland
    Heimkaupsmótið: Íslandsmót ungmenna (u8-u16) @ Miðgarður | Garðabær | Garðabær | Ísland

    Íslandsmót ungmenna (u8-u16) fer fram laugardaginn 4. nóvember í hinu nýja glæsilega íþróttahúsi Miðgarði í Garðabæ. Sunnudaginn, 5. nóvember fer fram Íslandsmót barna- og unglingasveita.

    Mótið hefst kl. 13  og er teflt í fimm aldursflokkum. Keppendur skulu mæta eigi síðar en kl. 12:40 og staðfesta mætingu. Krýndir verða 10 Íslandsmeistarar – efsti strákur og efsta stelpa í öllum flokkunum fimm.

    Afar góð verðlaun verða í boði. Allir Íslandsmeistararnir fá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2024 sem fram fer í Hörpu.

    8 ára og yngri (f. 2015 og síðar)

    Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.

    Skráðir keppendur (uppfært daglega). 

    9-10 ára (f. 2013 og 2014)

    Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.

    Skráðir keppendur (uppfært daglega). 

    11–12 ára (f. 2011 og 2012)

    Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 2.

    Skráðir keppendur (uppfært daglega).

    13–14 ára (f. 2009 og 2010)

    Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.

    Skráðir keppendur (uppfært daglega).

    15–16 ára (f. 2007 og 2008)

    Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5. 

    Skráðir keppendur (uppfært daglega).

    Skráning og greiðsla þátttökugjalda 

    SportAbler – skráning uppfærist daglega á Chess-Results

    Skráningafrestur rennur út föstudaginn, 3. nóvember kl. 13

    Vakin er athygli á því að engin veitingasala er í húsinu á meðan mótinu stendur að undanskildum sjálfsölum. Foreldrar eru því hvattir til að nesta krakkana.  

    Verðlaun

    Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í verðlaunasætum gilda oddastig. Þó skal tefld aukakeppni um Íslandsmeistaratitla í þremur elstu aldursflokknum.

    Verðlaunaafhending fer fram að keppni lokinni í hverjum flokki.

    Allir Íslandsmeistarar frá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2024

    Áskriftir frá Chessable og/eða Chess.com meðal verðlauna.

    Aukaverðlaun fyrir Íslandsmeistara í opnum flokki í u16 og u14

    Frítt námskeið hjá European Chess Union Academy.

    Nánari upplýsingar

    Þrír efstu í öllum flokkum fá verðlaunabikar.

    Allir keppendur verða leystir út með smá glaðningi.

    Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskák- eða hraðskákstiga eftir því sem við á.

    *Nánar um oddastig

    Allir við alla: 1. Sonneborn-Berger, 2. Innbyrðis úrslit, 3. Fjöldi sigra

    Opnir flokkar: 1. Buchols (-1), 2. Buchols, 3. Innbyrðis úrslit, 4. Sonneborn-Berger 5. Fjöldi

    - Auglýsing -