Bráðabanadagur í 128 manna úrslita í opnum og 64 manna úrslitum kvenna á Heimsbikarmótinu í Baku í Azerbaijan fór fram í dag. Óhætt er að segja að úrslitin hafi nokkurn veginn verið eftir bókinni góðu. Stigin og vizkualdurinn stóðu fyrir sínu í dag.

Þeir Hikaru Nakamura (2787) sem er númer 2 í styrkleikaröð, Anish Giri (2775) númer 5, Wesley So (2769) númer 6 og Maxime Vachier-Lagrave (2739) númer 10 fóru allir í gegnum bráðabanann með því að vinna strax í fyrsta atskákeinvíginu (25+10 skákir). Unnu aðra og jafntefli í hinni.

Fyrstu óvæntu úrslitin voru í einvígi (12) Alexander Grischuk (2736) við tiltölulega lítt þekktan íranskan skákmann Bardiya Daneshvar (2577) sem er aðeins 17 ára. Þeir gerðu jafntefli í 25+10 skákunum, líka í 10+5 og einnig í hraðskákinni 5+3. í seinni skákinni var Grischuk sjáanlega óöruggur í vörninni með hrók gegn hrók og biskup en slapp fyrir horn á 50 leikja reglunni. Þá tók við 3+2 hraðskák þar sem dregið er um lit og menn skiptast á litum þar til einhver vinnur skák.

Grischu fékk hvítt í fyrstu skákinni og virtist vera búinn að jafna sig eftir stressið í 5+3 og fékk fína stöðu. Fékk biskupaparið og stóð mun betur. Á tímabili var svartur í mátneti og Grischuk vel +10 í lokin en missti af vinningnum og virtist svo algjörlega missa allt áttaskyn og staðan fór gjörsamlega í vaskinn.

Óvænt tap og líka hvernig Grischuk tapaði. Sasha er venjulega eitursvalur undir pressu og hokinn af reynslu. Eitthvað klikkaði þó hjá honum í dag.

Af öðrum þekktum fóru þeir Ivanchuk (2667), Vidit (2719), Ponomariov (2664), Howell (2677) og Íslandvinurinn og Reykjavíkurskákmótsmeistarinn Nils Grandelius (2684) allir áfram. Alls voru 30 bráðabanar á dagskrá í dag.

Kannski er skýringing á tapi og taugaleysi Grischuk sú að eiginkona hans, Kateryna Lagno (2552) var nýdottinn út úr Heimsbikarmótinu í kvennaflokki. Lagno var númer 4 í styrkleikaröð á mótinu. Hún tefldi við indverska stúlku með „óindverskasta nafn“ sem sést hefur, Mary Ann Gomes (2326).

Í betri stöðu lék Lagno skelfilega af sér.

26.Dxd5?? var skelfilegur afleikur hér og eftir 26…Hc5 getur hvítur ekki valdað riddarann á d4. Eftir 27.Re6+ Dxe6! stendur svartur til vinnings! Ekki góður dagur hjá þeim hjónum!

Þær Kosteniuk (2532) fimmta í styrkleikaröð, Dzagnidze (2511) sjöunda og Bibisara Assaubayeva (2469) komust allar áfram úr sínum bráðabana í atskákinni.

Á morgun hefst svo þriðja umferð sem er 64 manna úrslit í opnum flokki og 32 manna úrslit i kvennaflokki. Margar skemmtilegar viðureignir og t.d. mætir kóngurinn, Magnus Carlsen landa sínum Aryan Tari.

- Auglýsing -