Íslandsmeistari í fyrsta sinn Vignir Vatnar við taflið í félagsheimili Hauka. — Ljósmynd/Ómar Óskarsson.

Þrír Íslendingar tefla á Leca Chess Open 2023 í Porto, Portúgal. Þetta eru: GM Vignir Vatnar Stefánsson (2487), GM Helgi Áss Grétarsson (2475) og Stefán Bergsson (2169). Vignir er númer 6 í styrkleikaröð, Helgi Áss númer 7 og Stefán Bergsson númer 38. Alls er 171 skákmaður skráður til leiks á mótið. Í dag fór sjöunda umferðin. Mótið er keyrt áfram á sama tempói og Reykjavíkurskákmótið, 9 umferðir á sjö dögum.

Þeir félagar höfðu allir 4,5 vinning af 6 fyrir umferð dagsins

Vignir fékk svart á Frakkann Miguel Borges Sismeiro (2309). Sá franski beitti Bb5+ afbrigðinu gegn Sikileyjarvörn Vignis. Vignir jafnaði fljótt taflið en fékk kannski úr litlu að moða. Sá franski „redúseraði primitíft“ og Vignir hafði örlitið betra endatafl. Jafntefli voru þó liklegustu úrslitin.

Vendipunkturinn varð hér

Í stað þess að fara aftur á a4 og halda pressu á a7 peðinu lék sá franski passíft með 40.Hd3? Vignir svaraði 40…Hc2 41.a4 g4+ og vinnur svo g3-peðið og fær tvö samstæð.

Skákin sýnir kannski muninn á „ungum og gröðum“ stórmeistara og svo einum sem er það alls ekki í svipaðri aðstöðu eins og við sjáum á eftir!

Helgi Áss fékk hvítt á Indverjann Sai Agni Jeevitesh (2289). Helgi er í banastuði þessa dagana og gaman að skoða 1.d4 skákir hans með hvítu. Þær eru í senn þungar og dýnamískar.  Sá inverskri fékk á sig meiri og meiri þunga og Helgi hafði yfirhöndina. Loks kláraði Helgi dæmið með fléttu í lokin.

„Tactics flow from a superior position“

Helgi fékk 97% accuracy skor í skákreiknum og 10 í svokallað ACL (average centipawn loss). Á íslensku þýðir þetta að hann tefldi feykilega vel!

Stefán Bergsson hefur verið að sækja í sig veðrið og fékk hvítt á franska stórmeistarann Eric Prie (2353). Eftir fjórar sigurskákir í röð tókst loks einhverjum að stoppa Stefán en niðurstaðan varð þó jafntefli sem teljast góð úrslit fyrir okkar mann.

Frakkinn tefldi Skandinavann (1.e4 d5) og Stefán þurfti aldrei að hafa áhyggjur en á móti setti hann kannski ekki neina pressu að ráði á þann franska. Jafntefli rökrétt úrslit. Vignir hefði þó líklega teflt lokastöðuna áfram á svart, munurinn á „greddunni“ sem ég nefndi áðan! Líklegast hefði það þó ekki dugað til vinnings í þessari stöðu, möguleikarnir kannski örlítið praktískari í hróksendataflinu sem Vignir fékk upp.

Vignir og Helgi eru í fínum málum, báðir komnir með 5,5 vinning af 7 og eru jafnir sex öðrum skákmönnum í efsta sæti. Stefán kemur stutt á eftir með 5 vinninga.

Pörun í áttundu og næstsíðustu umferð liggur ekki fyrir en skv. rannsóknarvinnur Skak.is er þetta líklegast (birt með fyrirvara):

Helgi Áss fær hvítt á GM Manuel Perez Candelario (2573)
Vignir fær hvítt á FM Maran Senthil (2287)
Stefán fær hvítt á IM Panda Sambil (2417)

- Auglýsing -