Í dag hófust 64 manna úrslit á Heimsbikarmótinu í skák og á sama tíma 32 manna úrslit í kvennaflokki. Fyrri kappskákin fer fram í dag, seinni á morgun og svo bráðabanar þessarar umferðar á mánudaginn. Þriðjudaginn 8. ágúst verður svo annar af tveimur frídögum á Heimsbikarmótinu í Baku.
Norðmannaslagur
Að jafnaði eru augu flestra á Magnus Carlsen (2835), mögulega sterkasta skákmanni allra tíma. Ef hann er það ekki er hann að öllum líkindum sterkasti endataflsskákmaður allra tíma. Hann mætti landa sínum Aryan Tari (2641) og hafði hvítt.
Úr byrjuninni komu smá rúlluskauta-flækjur og Tari virtist alveg vera með sitt á hreinu. Carlsen virtist hinsvegar sallarólegur og hirti skiptamun og fór í endatafl þar sem svartur hafði jú nóg af peðum fyrir skiptamun en Carlsen sýndi að hrókur gegn riddara getur verið ansi mikið vesen á köflum.
Carlsen kláraði svo skákina með stæl og skilaði skiptamuninum fyrir unnið peðsendatafl. Einfaldleikinn er oft bestur!
Norwegian no. 1 @MagnusCarlsen has one foot in Round 4 of the #FIDEWorldCup after beating Norwegian no. 2 Aryan Tari! pic.twitter.com/WDUKysmvhH
— chess24.com (@chess24com) August 5, 2023
Teflt til sigurs en tiltölulega stutt jafntefli?

Bandaríkjamaðurinn knái og næststigahæsti maður mótsins Hikaru Nakamura (2787) virtist allavega miðað við byrjanaval sitt á móti Ungverjanum Benjamin Gledura (2645) ætla að tefla til vinnings með svörtu. Gledura valdi að tefla fianchetto-afbrigðið með g3/Bg2 en gaman hefði verið að sjá hann tefla eitt af meira „krefjandi“ afbrigðum fyrir svart en sem Benoni maður á köflum þá er sú byrjun auðvitað meingölluð þó hún sé skemmtileg á köflum. Svartur virðist eiga að halda sínu gegn fianchetto-afbrigðinu og Nakamura var aldrei í vandræðum. Naka fékk örlítið frumkvæði en líklega aldrei nóg til að ógna. Skákin einfaldaðist svo í hróksendatafl.
Nakamura goes for the Benoni! "A very clear sign that Hikaru's playing for a win with Black" (Naroditsky)https://t.co/yHrSFxQoRD#FIDEWorldCup pic.twitter.com/YLUtKgMTB5
— chess24.com (@chess24com) August 5, 2023
Nakamura er snöggur að mæta og skýra skákirnar sínar!
Caruana að tefla best, eða hvað?
Fabiano Caruana (2782) var að tefla skínandi vel í fyrstu umferðinni og vann báðar kappskákirnar. Þegar liðið var á skák dagsins var ég að hugsa hversu vel og vandræðalaust Bandaríkjamaðurinn knái væri að tefla. Hann bjó sér áreynslulaust til stórhættuleg peð á drottningarvæng og virtist bara tímaspursmál hvenær gegnumbrotið kæmi.
32.a6?? var arfaslakur leikur. Íslandsvinurinn Mustafa Yilmaz (2639) drap og náði svo að skipta á d-peði sínu og b-peði Fabi og hættan liðin hjá.
Ótrúlegt hjá jafn sterkum manni og Fabiano Caruana að missa af 32.Hxc6! og svartur getur nánast gefið. Ef 32…bxc6 þá einfaldalega 33.a6 og peðin eru of sterk. 33…Hxb6 34.a7 vinnur þar sem hvíti biskupinn valdar a6 reitinn. Merkilegt nokk þá er 32.f3 næstbesti leikur hvíts af því að þá gæti hann farið í sama plan í næsta leik!
Svidler hinn síungi
Peter Svidler (2688) er í jöfnu einvígi á pappírnum gegn Jorden van Foreest (2693). Það sem Svidler hefur umfram Hollendinginn unga er hinsvegar reynsla sem fáir geta státað af. Svidler vann þetta mót á sínum tíma og hann sýndi skemmtilega takta í dag.
van Foreest nánast bauð Svidler í dans með 22…c4? og Svidler tók boðinu 23.Bxg6! fxg6 24.Bxe7 Dxe7 25.Hxg6+ og hvítur vann nokkrum leikjum síðar.
Fantastic game by @polborta at #FIDEWorldCup 👏 pic.twitter.com/qoV3AX9ho7
— PhotoChess (@photochess) August 5, 2023
Indversku ungstirnin
Indversku ungstrinin eru fjölmörg Pragganandhaa (2690) náði að landa sigri gegn Tékkanum reynda David Navara (2689). Navara var í bráðabana í gær og kannski þreyttur, þreyta kemur oft við tímamörkin og 40. leikur Tékkans 40…Rg5? var slakur
Pragga fékk nægan tíma og gat reiknað í rólegheitum og 41.Rfxe5 vinnur mikilvægt peð þar sem 41…Rxe5 42.Hf2+ vinnur manninn til baka.
GM David Navara makes a critical error in the 40th move with Black, and Praggnanandhaa finds the winning move 41. Nfxe5! #FIDEWorldCup pic.twitter.com/rjH51qGzW2
— ChessBase India (@ChessbaseIndia) August 5, 2023
Hinir ungu Indverjarnir gerðu báðir jafntefli með svörtu mönnunum, Nihal Sarin (2688) við Deac Bogdan-Dean (2693) og Gukesh (2744) gerði jafntefli við samlanda sinn Narayanan (2656).
Dubov flaug of nálægt sólinni
Hinn skemmtilegi skákmaður Daniil Dubov (2716) leggur oft mikið á stöðurnar. Hann tók sénsa gegn Ítalanum Daniele Vocaturo (2609)
Hér hafði Dubov fórnað hrók en sóknarfæri hans eru að fjara út. Hann lék 32.Dxc7+? en þá komst svarta drottningin í vörnina. Í staðinn hefði 32.Dc5+ á einhvern ótrúlegan hátt leitt til þráskákar. Hvítur endurtekur stöðuna og á alltaf Rd6 á réttum tíma og drottningin nær þráskák.
Dubov þarf nú að ná sér í „eftirspurnarsigur“ með svörtu á morgun.
#FIDEWorldCup upset alert! 💥
GM Daniele Vocaturo (2609 Italy) defeats GM Daniil Dubov (2716 FIDE) with the black pieces in the first game of round 3. Daniil needs a win on demand tomorrow to take their match to tiebreaks.
📷 Maria Emelianova @photochess pic.twitter.com/7HqHF9BnhB
— International Chess Federation (@FIDE_chess) August 5, 2023
Heldur áfram að koma á óvart
Moldóvinn Ivan Schitco (2507) heldur áfram að koma á óvart en hann sló út Sam Shankland (2711) í síðustu umferð. Nú vann hann gegn Pólverjanum reynda Radoslaw Wojtaszek (2676). Pólverjinn reyndar framdi algjört „harakiri“
Wojtaszek hafði hvítt í þessari stöðu, já hvítt, og svartur vann! Ákveðin gjöf þarna og hún gæti reynst dýrkeypt. Wojtaszek þarf líka „eftirspurnarsigur“ með svörtu á morgun.
Ekki vanmeta Leinier
Kúbverjinn „fyrrverandi“ Leinier Dominguez (2739) sem teflir nú fyrir Bandaríkjin er gríðarlega traustur skákmaður. Eitt af hans átrúnaðargoðum hlýtur að vera Capablanca og Dominguez nýtti sér mistök heimamannsins Guseinov (2661)
Svartur á jafntefli með t.d. 40…Hfa8 en lék í staðinn 40…Hf1?? en áttaði sig á eftir 41.Bg8! að hann er í mátneti á h-línunni og tapar liði.
40…Rf1? was a blunder by the Azeri GM Gadir Guseinov (2661).
Can you find what GM Leinier Dominguez (2739 USA) played and forced resignation? #FIDEWorldCup
📷 Maria Emelianova @photochess pic.twitter.com/Sr7LoKF0Gz
— International Chess Federation (@FIDE_chess) August 5, 2023
Áhugaverðar viðureignir
Nú þegar fækkar með hverri umferð verða viðureignirnar jafnari og áhugaverðari. Nokkrar skemmtilegar viðureignir í þessari umferð þar sem fyrri skákin endaði með jafntefli.
Íslandsvinirnir Amin Bassem (2694) og Nils Grandelius (2684) eigast við, mjög jöfn viðureign og erfitt að spá í spilin hér.
Ólympíumeistarinn Sindarov (2639) mætir Maxime Vachier-Lagrave (2739).
Ofurungstirnið „fyrrverandi“ Wei Yi (2726) mætir kempunni Vasyl Ivanchuk (2667)
Kvennaflokkur
Mikið var um jafntefli en af toppunum voru það Goryachkina (2557) og Maria Muzychuk (2511) sem náðu í sigra. Ju Wenjun gerði enn eitt jafnteflið í kappskákarhlutanum.
Sú indverska Mary Ann Gomes (2326) náði ekki að fylgja eftir sigrinum á Lagno og laut í dúk.
Nurgyul Salimova uses her superior endgame skills to slowly but surely defeat Mary Ann Gomes with the Black pieces! 👏👏👏https://t.co/2yIXJTtwKZ
📷: Maria Emelianova#chess #womeninchess #FIDEWorldCup pic.twitter.com/MkJqdqnzw3— Women's Chess Coverage (@OnTheQueenside) August 5, 2023
Á morgun heldur þriðja umferðin áfram sem er 64 manna úrslit í opnum flokki og 32 manna úrslit i kvennaflokki.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar Chess.com | kvenna (skákir hefjast 11:00)
- Beinar útsendingar lichess | Kvenna
















