Þrír Íslendingar tefla á Leca Chess Open 2023 í Porto, Portúgal. Þetta eru: GM Vignir Vatnar Stefánsson (2487), GM Helgi Áss Grétarsson (2475) og Stefán Bergsson (2169). Vignir er númer 6 í styrkleikaröð, Helgi Áss númer 7 og Stefán Bergsson númer 38. Alls er 171 skákmaður skráður til leiks á mótið. Í dag fór áttunda og næstsíðasta umferðin. Mótið er keyrt áfram á sama tempói og Reykjavíkurskákmótið, 9 umferðir á sjö dögum.

Vignir og Helgi Áss voru báðir með 5,5 vinning af 7 og jafnir sex öðrum skákmönnum í efsta sætði. Stefán Bergsson va rmeð 5 vinninga og í skiptu 9. sæti.

Helgi Áss var á efsta borði og fékk þar hvítu mennina gegn spænska stórmeistaranum Manuel Perez Candelario (2573). 1.d4 kom ekki á óvart frá Helga og við fengum drottningarbragð. Spánverjinn fór aðeins óhefðbundnari slóðir með 7…Bg4. Snemma í miðtaflinu tók Candelario á sig stakt peð en hafði virka menn, þung stöðubarátta framundan.

Sá spænski tefldi vel en Helgi fékk fínan séns á að fá auðteflanlegt miðtafl.

26…a5? var vafasamur. Hér gat Helgi leikið 27.Rxa5! Bxa5 28.b4 og hvítur hefur þægilegra tafl. Þess í stað komst þetta peð á a4 og svartur tók rými og hvítu mennirnir urðu klaufalegir.

Spánverjinn hélt áfram að þjarma að Helga en gaf aftur færi á sér hér…

42…Hc5? gaf hvítum færi á 43.Re6!! og taflið einfaldast og verður jafnt. Þess í stað fór stöðu hvíts enn hrakandi. Helgi náði með seiglu að komast í endatafl skiptamun undir með einhverjum jafnteflissénsum en vörnin reyndist of erfið og Candelario vann sigur.

Vignir hafði hvítt á indverska FIDE-meistarann Maran Senthil (2287). Vignir beitti enskum leik og fékk upp svokallaða Maroczy-bind stöðu. Hvítur hefur aðeins meira rými og reynir að halda svörtum í skefjum.

Vignir náði að láta andstæðing sinn fá tvípeð með nokkuð þekktri taktískri aðgerð, Rc3-d5xf6-h5+ og svartur verður að taka með g-peði. Hvítur hafði eitthvað betra en erfitt að finna planið til að bæta stöðuna. Líklegast verður hvítur að binda vonir við að nýta peðameirihlutann á drottningarvæng og þangað fór kóngur Vignis, á b4 reitinn.

Næst fór Vignir í einu tilraunina í stöðunni, e5-framrásin. Svartur fipaðist og Vignir vann peð og náði í kjölfarið að nýta peðameirihlutann á drottningarvæng og góðan kóng. Enn einn seiglusigurinn hjá Vigni!

Vignir hefur 6,5 vinning af 8 og er jafn í efsta sæti ásamt tveimur öðrum.

Stefán fékk hvítt á franska alþjóðlega meistarann Thomas Dionisi (2401). Upp kom drottningarindverji og Stefán náði fínu miðtafli með aðeins betra rými. Staðan lokaðist og eitthvað fór úrskeiðis strategískt hjá hvítum. Svartur tók smátt og smátt yfir og svarta staðan sprakk út. Vörnin líklegast vonlaus og Stefán laut í dúk.

Lokaumferðin hefst fyrr á morgun og þar teflir Vignir upp á sigur á mótinu og mætir stórmeistaranum NR Vikash (2536) frá Indlandi með hvítt. Manuel Perez Candelario hefur einnig 6,5 af 8 og fær hvítt á Thomas Dionisi. Verður spennandi að fylgjast með á morgun!

- Auglýsing -