Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2487) endaði í efsta sæti ásamt þremur öðrum skákmeisturum á Leca Chess Open í Porto, Portúgal. Glæsilegur árangur hjá Vigni sem endaði með 7 vinninga af 9 mögulegum og var taplaus á mótinu. Helgi Áss Grétarsson (2475) endaði hálfum vinningi neðar með 6,5 vinning í 5-13. sæti en varð í 6. sæti á stigum. Glæsileg mótahrina hjá Helga í sumar! Stefán Bergsson endaði með 5 vinninga.

Vignir var í efsta sæti fyrir lokaumferðina ásamt andstæðingi sínum, N R Visakh (2536) stórmeistara frá Indlandi. Manuel Perez Candelario (2573) var einnig jafn þeim. Skemmst er frá því að segja að Candelario samdi mjög snemma með hvítu gegn franska alþjóðlega meistaranum Thomas Dionisi (2401). Tefldi hann frægt jafnteflisafbrigði í Berlínarvörninni.

Þarmeð var ljóst að jafntefli hjá Vigni og Visakh myndi tryggja þeim skiptingu á efsta sæti. Varð úr að þeir sömdu skömmu síðar í ótefldri skák, þráléku í byrjuninni.

Fínn árangur hjá Vigni sem endaði í 4. sæti á stigum. Raja Panjwani (2469) vann í lokaumferðinni og náði hinum þremur. Röðin á stigum varð 1. Candelario, 2. Panjwani og 3. Vikash.

Vinningshafar á Leca Open

Vignir hækkar um 7. elóstig fyrir árangurinn.

Helgi Áss mætti hinni reyndu Innu Gaponenko (2336). Helgi tefldi Philidor afbrigðið og beitti skotgrafarhernaði. Um tafllmennskuna hafði Helgi þetta að segja:

„Taflmennska svarts byggðist á sveigjanleika og var sú nálgun m.a. reist á því að hinn reynslumikli andstæðingur er enn haldinn tímahrakssýki á háu stigi. Það er sem sagt ágætis vinnuregla gegn slíkum andstæðingi að rétta viðkomandi matseðil af mörgum valkostum, slíkt eykur líkurnar á að hann velji eitraðan rétt og fari þannig með sjálfan sig í gröfina!“

Helgi fékk betra í miðtaflinu þar sem hann hafði sterkt miðborðspeð gegn engu slíku hjá hvítum. Inna lenti svo í vandræðum á svörtu reitunum eftir veikingu á stöðunni með peðsleik til f3. Sú úkraínska gafast svo upp þegar Helgi hafði vélað af henni sitthvorn skiptamuninn.

Fín skák hjá Helga sem hefur verið í fantaformi á þessum Evróputúr. Helgi hækkar um tæp 2 elóstig fyrir árangurinn á þessu móti.

Stefán Bergsson endaði á tapi í lokaumferðinni gegn Orlando Ribeiro (1967). Sá portúgalski tefldi af fítonskrafti og nýtti sér strandaðan riddara Stefáns á a5 reitnum sem fór þar snemma í byrjuninni og var þar alla skákina. Stefán fékk á sig óstöðvandi kóngssókn og gat í raun ekkert gert við því.

Stefán endaði með 5 vinninga í 54. sæti og tapar tæpum 20 stigum á mótinu.

Okkar menn á Leca Chess Open 2023
- Auglýsing -