Í dag fengum við síðustu úrslit í 8 manna úrslitum á Heimsbikarmótinu í Baku í opnum flokki og undanúrslitum í kvennaflokki. Eitt einvígi þurfti bráðabana í dag í sínum hvorum flokknum. Í opna flokknum tefldu Pragganandhaa og Erigaisi til þrautar en í kvennaflokki var einvígið á milli Önnu Muzychuk og hinnar búlgörsku Nurgyul Salimovu.
Dembum okkur í fjörið!
Rameshbabu Pragganandhaa (2707) – Arjun Erigaisi (2704)
Fyrsta 25+10 skákin var nokkuð róleg, enginn að rugga bátnum.
Seinni 25+10 skákin var líka í rólegri kantinum.
Í 10+10 hlutanum fór leikar að hressast. Erigaisi tefldi miðborðsbragð, svipað og menn eins og Nepomniachtchi og don Robert Lagerman hafa gert. Dæmið gekk nú bara nokkuð vel upp hjá Erigaisi og hann fékk mjög gott tafl, vann peð og stóð til vinnings.
Í endataflinu skrikaði honum hinsvegar fótur og Pragga tók sénsinn og náði að vinna endataflið, endaði með drottningu gegn hrók og vann það.
Arjun Erigaisi svaraði fyrir sig með svörtu og náði að snúa á Pragga tiltölulega snemma í miðtaflinu, leikar aftur orðnir jafnir.
Einvígið fór þá í hraðskákir. Enn náði svartur í sigur og í þetta skiptið var það Pragga. Hann missti reyndar af máti í tveimur alveg í lokin en staðan var kolunnin hvort eð er.
Seinni 5+3 skákin var hörkuskák en hrókur í hafið reyndist og mikið undir lokin!
Enn jafnt og því þurfti að grípa til 3+2 hraðskák. Í þessum skákum er svokallað „Sudden-Death“ þannig að ef annar vinnur skákina er einvíginu lokið. Hér ræðust loks úrslitin.
Loks kom sigur með hvítu þar sem skákin flæddi nokkuð vel, hvítur vann peð og sigldi þessu heim.
Úrslit: 5-4 og Pragganandhaa er kominn í undanúrslitin.
Í undanúrslitum mætast:
Magnus Carslen og Nijat Abasov
Fabiano Caruana og Rameshbabu Pragganandhaa
Kvennaflokkur
Anna Muzychuk (2504) – Nurgyul Salimova (2403)
Hörkuspennandi einvígi þar sem Salimova byrjaði betur. Í taktískri og flókinni skák fann hún flotta leið.
29…Bf5!! ótrúlegt en satt má Anna ekki taka hrókinn með skák, sem hún gerði. 30.Dxb8+? Kh7 31.Df4 Bh6 og hvítur er algjörlega varnarlaus.
Anna komin með bakið upp við vegg en hún kom til baka með svörtu, tefldi Hollendinginn og náði í seiglusigur í endatafli.
Næst voru það 10+10 skákir, ef Salimova náði flottri taktík með Bf5 þá náði hún jafnvel flottari taktík í fyrri 10+10 skákinni.
22.Hxd5!! fyrri sleggjan 22…exd5
23.Bb6!! og svartur er varnarlaus, tapar drottningu eða sættir sig við mátið á e8!
Aftur var Anna komin með bakið upp við vegginn. Hún þurfti nauðsynlega að vinna en endaði á að fórna aðeins yfir sig og sætti sig að lokum við jafntefli. Salimova komin áfram í úrslitin, gríðarlega óvænt!
Congratulations to 20-year-old Nurgyul Salimova on reaching the final of the 2023 Women's #FIDEWorldCup and qualifying for the 2024 Candidates! Anna Muzychuk still has a chance at the Candidates as she plays Tan Zhongyi in the 3rd place match: https://t.co/vuHcPHdQo8 pic.twitter.com/nmEJM9O2de
— chess24.com (@chess24com) August 17, 2023
Úrslit: Salimova vinnur 3,5-2,5 og er komin í úrslit, magnaður árangur!
Alexandra Goryachkina mætir svo Salimovu í úrslitaviðureigninni.
Á morgun er frídagur en á laugardag höldum við áfram með undanúrslit í opnum flokki og úrslitum í kvennaflokki.
Upptaka af útsendingu dagsins:
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar Chess.com | kvenna (skákir hefjast 11:00)
- Beinar útsendingar lichess | Kvenna















